Hraðall
Hraðall - 90 daga umbreyting – Upphafið á nýrri vegferð!
Einstakt tækifæri - Hefst 6. september
90 daga umbreyting er hraðall til þess að efla þína vegferð í lífi og starfi með áherslu á stöðuga þjálfun og menntun sem miðar að því að grípa tækifæri framtíðarinnar. Markmiðið er að hjálpa þér að endurhugsa tilgang og markmið þín með aukinn árangur að leiðarljósi og búa til lærdómsvegferð sem miðar að framþróun í leik og starfi. Hraðallinn er samansettur með það að leiðarljósi að einstaklingar fái tæki, tól og stuðning til þess að hanna og móta sína eigin framtíð og frama.
Hraðallinn samastendur af A. fimm vinnustofum (í stað- og fjarnámi), þ.m.t. upphafi hraðals og lok hraðals þar sem farið er yfir ferlið og kennt á tæki á tól sem eru notuð í hraðlinum, B. Fimm fundum með ráðgjafa sem hjálpar til við að útfæra og raungera markmið, C. Verkefnum sem fela í sér tæki og tól fyrir endurskoðun á sjálfmati og útfærslu á áskorunum. Einnig hafa þátttakendur aðgang að rafrænu námsefni sem tengist vegferð þeirra og tækifærum til tengslamyndunar.
Lykilþættir:
90 daga áætlun í grófum dráttum:
Kafli 1: (dagar 1 – 10) – Að undirbúa vegferðina
Kafli 2: (dagar 11 – 30) – Að hraða lærdómsferlinu
Kafli 3: (dagar 31 – 60) – Ný hæfni og sigrar
Kafli 4: (dagar 61 – 80) – Framþróun og stefna til framtíðar
Kafli 5: (dagar 80 – 90) – Upphafið á nýrri vegferð
Hraðallinn var upphaflega hannaður fyrir Akademias Executive MBA til þess að hjálpa nemendum að skipuleggja námsvegferð sína og nýta námið til framtíðar.
HAGNÝTAR UPPLÝSINGAR
Nýtt námskeið hefst 6. september með vinnustofu 1. Alls eru 5 vinnustofur: Vinnustofa 1 (6. september kl. 13:00 – 16:00), Vinnustofa 2 (16. september kl. 9:00 -12:00), Vinnustofa 3 (14. október kl. 9:00 – 12:00), Vinnustofa 4 (18. Nóvember kl. 9:00 – 12:00) og Vinnustofa 5 (6. desember kl. 13:00 – 16:00). Einnig eru fundir með ráðgjöfum og samhittingur í hópum sem verða tímasettir í samráði við þátttakendur.
Námið er í boði sem staðnám eða fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið.
Námið er hannað sem 30 klst – 5 x þriggja klst vinnustofur, 5 x 60 mín ráðgjafarfundir, 3 x 90 mín samhittingur + heimavinnu (sjálfsmat, áskoranir og ítarefni)
Námsmat: Einstaklingsverkefni
Námsgjöld: 319.000 kr.
Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka en jafnframt dreifa greiðslum í allt að 6 mánuði. Hafið samband við bokhald@akademias.is til að dreifa greiðslum.
Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki, óháð starfsmanni (sjá www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum akademias@akademias.is.
Dr. Eyþór Ívar Jónsson
Þórarinn Hjálmarsson