Leiðtogi í eigin lífi
UAK og Akademias taka höndum saman og bjóða félagskonum UAK upp á námskeiðið Leiðtogi í eigin lífi.
UAK vinna ötult að því að skapa vettvang, þvert á pólitískar skoðanir og atvinnugreinar og bjóða upp á hagnýta fræðslu, styrkingu tengslanets og valdeflingu fyrir ungar konur á ólíkum sviðum samfélagsins.
Akademias er vettvangur fyrir menntun og þjálfun framtíðarinnar og þess vegna fannst UAK spennandi tækifæri að fara í samstarf með Akademias sem vinna með einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum til þess að efla þekkingu, hugvit og færni með það að markmiði að skapa verðmæti.
Námskeiðið Leiðtogi í eigin lífi er því hannað sérstaklega eftir þörfum félagskvenna UAK og nýtist þeim sem vilja taka að sér forystuhlutverk í eigin lífi eða á vinnumarkaði með það í huga að stuðla að aukinni persónulegri eða faglegri hæfni félagskvenna á fjölbreytttum sviðum.
Leiðbeinendur námskeiðsins eru 6 talsins og sérfræðingar sem hafa vakið athygli á sínu sviði:
- Ari Fenger
Forstjóri 1912 - Edda Hermannsdóttir
Markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka - Þóra Hrund Guðbrandsdóttir
Framkvæmdastjóri Ímark - Hlynur Atli Magnússon
Meðeigandi og ráðgjafi í mannauðsmálum og ráðningum hjá Hagvangi - Stefanía Hildur Ásmundsdóttir
Ráðgjafi í mannauðsmálum og ráðningum hjá Hagvangi - Ingi Björn Sigurðsson
Stofnandi Brum Funding ehf.
Áfangar:
Hefjumst handa - Lilja Gylfadóttir, stofnandi UAK
- Stjórnendur og hæfni til framtíðar – Ari Fenger
- Samskipti og tengslanet – Edda Hermannsdóttir
- Markmiðasetning – Þóra Hrund Guðbrandsdóttir
- Í leit að starfi – Hlynur Atli Magnússon og Stefanía Hildur Ásmundsdóttir
- Frá hugmynd til framkvæmdar – Ingi Björn Sigurðsson
Lokaorð – Lísa Rán Arnórsdóttir, formaður UAK.
Hagnýtar upplýsingar:
UAK Spretturinn er rafrænn sprettur sem inniheldur 5 námskeið sem félagskonur geta sótt hvar og hvenær sem er til lok júlí. Að spretti loknum verður haldið skemmtilegt lokahóf fyrir þátttakendur áður en næsta starfsár UAK hefst í september!
Síðasti dagur til þess að ljúka við námskeiðin: 31.7.23
Gjald: Fullt verð 99.000 kr. Fyrir aðildarfélaga UAK: 24.000 kr.
Greiðsla: Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka. Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki, óháð starfsmanni (sjá www.attin.is). Hafðu samband við Akademias sem getur aðstoðað þig akademias@akademias.is.
Leiðbeinendur
Ingi Björn Sigurðsson fjárfestingarráðgjafi
Edda Hermannsdóttir, director of marketing and communication at Íslandsbanki
Hlynur Magnússon og Stefanía Ásmundsdóttir, ráðgjafar í mannauðsmálum og ráðningum hjá Hagvangi.
Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Ímark
Ari Fenger, forstjóri og einn af eigendum 1912