Almannatengsl, samskipti við fjölmiðla og krísustjórnun

Útgáfudagur: 26/09/22
Síðast uppfært: 20/09/24

Í námskeiðinu lærir þú grunnatriði almannatengsla og hvernig þau nýtast fyrirtækjum í samskiptum við sína markhópa.

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
  • Skilji hvað almannatengsl eru og hvernig þau gætu nýst þér vel í starfi

  • Öðlist innsýn í markhópa, markmið og lykilskilaboð, auki færni sína í samskiptum við fjölmiðla og hvernig hægt er að útbúa fréttatilkynningar með ákveðinni leið til að koma okkur í fréttir

  • Læri hvernig best er að undirbúa sig undir viðtal og hvernig hægt er að nýta samfélagsmiðla, þekki til orðspors og málefnastjórnunar og fái innsýn einnig í það hvað felst í krísustjórnun

Fjölmörg dæmi eru tekin til að dýpka skilning á viðfangsefninu.

 

Fyrir hverja?

Námskeiðið er fyrir aðila úr öllum geirum atvinnulífsins sem vilja auka þekkingu sína og færni í almannatengslum og samskiptum við fjölmiðla, ásamt getu þeirra til að bregðast við krísum.