Employment (for immigrants)

Útgáfudagur: 13/03/23
Síðast uppfært: 17/10/24

Námskeiðið er hugsað fyrir erlenda einstaklinga sem hefja störf á Íslandi. Í námskeiðinu fá þátttakendur innsýn í það helsta í íslensku atvinnulífi.


Fjallað er um ávinning samfélagsins og einstaklingsins af því að vera launþegi, hver réttindi og skyldur launþega eru á vinnumarkaði, farið yfir og útskýrt hvað stéttarfélag er og ávinning launþega af því að vera þátttakandi í stéttarfélagi.  

Einnig er fjallað um laun og skatta, farið yfir lífeyriskerfið og hvað felst í því ef einstaklingur velur að taka að sér verktakavinnu.

 

Fyrir hverja?
Námskeiðið er fyrst og fremst hugsað fyrir erlenda ríkisborgara sem setjast að á Íslandi, tímabundið eða til langs tíma, og vilja kynna sér það helsta sem tengist íslensku atvinnulífi.