Fjölskylduhlutverk í vanvirkum fjölskyldum
Útgáfudagur: 13/12/23
Síðast uppfært: 17/10/24
Líður þér stundum eins og þú „vitir ekki hver þú ert“? Kannast þú við að vera stöðugt að reyna að bjarga öðrum en í erfiðleikum með að sinna eigin þörfum? Eða ertu kannski með mikla fullkomnunaráráttu, mátt ekki gera mistök og þarft að ná árangri á öllum sviðum? Passar þú þig að taka þér ekkert fyrir hendur sem þú óttast að þú náir ekki árangri með? Eða hefur þú upplifað að það sé eins og þú sért svarti sauðurinn í fjölskyldunni? Finnur þú fyrir skömm og óöryggi? Ertu kannski að upplifa að þú megir ekki taka pláss og vilt helst láta sem minnst fyrir þér fara?
Á þessu áhugaverða námskeiði er fjallað um tengslin á milli ákveðinna vandamála í vanvirkum og alkóhólískum fjölskyldum og hlutverka sem verða til í slíkum aðstæðum.
Fyrir hverja?
Námskeiðið er í senn krefjandi og opinberandi fyrir alla þá sem kannast við að hafa alist upp við erfiðar aðstæður vegna vímuefnafíknar fjölskyldumeðlims eða annarra uppeldisþátta sem teljast mega vera ófullnægjandi og vanvirkir.