Microsoft Clipchamp 2024
Útgáfudagur: 10/10/24
Síðast uppfært: 10/10/24
Clipchamp er myndvinnsluforrit sem gerir þér kleift að búa til og breyta myndböndum beint í vafranum þínum eða í Clipchamp forritinu sjáflu. Clipchamp er hluti af Microsoft svítunni en líka hægt að nálgast fría útgáfu þess fyrir notendur á netinu.
Með Clipchamp getur þú sameinað myndbönd, myndir og hljóðskrár, bætt við texta og áhrifum og vistað fullunnið myndband á tölvunni þinni. Það er hannað til að vera auðvelt í notkun, jafnvel fyrir þá sem hafa enga fyrri reynslu af myndbandsklippingu.
Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
Öðlist góða innsýn í viðmótið sjálft og helstu stillingar, geti búið til myndband með aðstoð gervigreindar og þekki notkun á sniðmátum
Geti flutt inn efni til notkunar, geti unnið með efni á tímalínu og hvaða valmöguleikar eru í boði
Fái innsýn í það hvernig hægt er að setja texta á tímalínu, geti búið til undirtexta, þekki hvernig hægt er að taka upp myndband og hvernig hægt er að breyta texta í talað mál.
Fyrir hverja?
Clipchamp er fyrir alla sem vilja búa til og breyta myndböndum á auðveldan hátt. Það er hentugt fyrir byrjendur, smáfyrirtæki, nemendur og kennara.