Microsoft Excel 2024, Vefviðmótið
Útgáfudagur: 30/04/24
Síðast uppfært: 01/04/25
Microsoft Excel vefviðmótið er einnig þekkt sem Excel Online. Þetta er vefútgáfa af Microsoft Excel sem gerir þér kleift að vinna með forritið í vafra. Á námskeiðinu er farið í viðmótið sem birtist þegar ræst er í vafra og skoðaður munurinn á því v. Forritið. Oftast eru vefútgáfur forrita einfaldari og bjóða oftar en ekki upp á allt sem forritið býður upp á en á þessari stuttu yfirferð er farið yfir nokkur atriði sem gott er að átta sig á ef vinna skal með forritið í gegnum vefviðmótið í vafra.
Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
- átti sig á þeim mun sem felst í viðmóti online útgáfunnar og forritsins sjálfs
- kynni sér hvað útgáfusaga er, hvernig hægt er að vernda skjal og eða deila skjali í vefviðmótinu
- þekki einnig svæðisstillingar og sjálfkrafa vistun
Fyrir hverja?
Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja kynna sér muninn á birtingu og vinnslu Excel þegar unnið er í gegnum vafra á netinu.