Samningatækni til árangurs - aðferðafræði FBI

Útgáfudagur: 27/12/22
Síðast uppfært: 01/10/24

Námskeiðið er endurgerð fyrra námskeiðs sem var upptekin kennslustund í sal með þátttakendum. Farið er yfir samningatækni FBI og það hvernig FBI til að mynda notar í samningaviðræðum við hryðjuverkamenn og aðra glæpamenn. Í slíkum aðstæðum er ekki hægt að loka samningum með því að setja ,,þú getur 2 gísla, og ég 2, erum við þá ekki sátt?“.  Allt annað en að ná öllum gíslunum er óásættanlegt.

Námskeiðið byggir á bókinni Never Split the Difference eftir Chris Voss en hann var í áratugi einn helsti samningamaður FBI en fór síðar að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum að ná meiri árangri við samningaborðið með tækni FBI.

Tæknin byggir á einföldum og hagnýtum aðferðum til að sýna hluttekningu, skapa traust og vinna þannig mótaðila á okkar band svo samningar náist.

 

Fyrir hverja?

Alla sem koma að gerð samninga og vilja bæta færni sína í að loka þeim, hvort sem er í atvinnulífi eða einkalífi þegar ágreiningur í samskiptum kemur til.