Samskipti og tengslanet í atvinnulífi

Útgáfudagur: 21/11/22
Síðast uppfært: 20/09/24

Á námskeiðinu er farið yfir hvernig samskipti þróast á tímum tæknibreytinga á vinnumarkaði. Samhliða þeim tæknibreytingum hefur aldrei verið jafn mikilvægt að rækta tengsl við alla hagaðila og rækta tengslanet í leik og starfi.
 

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi

  • sjái mikilvægi þess að hafa gott tengslanet í kringum sig, hvort heldur er í vinnunni eða í einkalífi

  • skilji mikilvægi þess að rækta slík tengslanet, þau verði ekki til af sjálfu sér

 

Fyrir hverja?

Alla þá sem vilja rækta tengslanet sitt í leik og starfi og þurfa til þess hugmyndir eða aðferðir.