Skapandi vinnuumhverfi

Útgáfudagur: 27/09/22
Síðast uppfært: 21/01/25

Hvað þarf, til að vera leiðtogi í skapandi hugsun? Hvernig gera stjórnendur lærdóm og þekkingu hluta af menningu fyrirtæksins? Þessum spurningum og fleirum svarar  Guðmundur Arnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Akademias á námskeiðinu Skapandi vinnuumhverfi sem byggir á stöðugum lærdómi. 

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi

  • skilji hugtakið fyrirtækjamenning, hvað þarf til að ná góðri menningu og hvernig hægt er að virkja hana sem best
  • átti sig á mikilvægi sköpunargleði innan fyrirtækis og skilji hugtakið hliðstæð hugsun
  • átti sig á mikilvægi stöðugs lærdóms, að lærdómur líkist ferli sem er alltaf í gangi og einnig hvað hugtakið vaxtarhakk þýðir

Fyrir hverja?

Námskeiðið er fyrir alla starfsmenn fyrirtækja og stofnana sem vilja ná meiri árangri.