Stafræn umbreyting og leiðtogar
Útgáfudagur: 04/10/22
Síðast uppfært: 23/09/24
Stafrænar umbreytingar eru að gjörbreyta hvernig fyrirtæki starfa, hvernig neytendur versla og upplifa og hvernig starfsmenn vinna. Drifkraftur breytinga er alltaf að aukast og nú þegar er ljóst að flest störf munu breytast og skapandi eyðilegging mun gera úrelt þau fyrirtæki sem leitast ekki við að breytast í takt við tímann. Mikil þörf er fyrir stafræna leiðtoga sem skilja að stafræn umbreyting er ekki vegferð sem snýst um útlit heldur kjarnafærni fyrirtækisins.
Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
skilji hvernig stafrænar umbreytingar munu geta haft gríðarleg áhrif og eru tækifæri fyrir framtíðina og átti sig á hlutverki stafræns leiðtoga í fyrirtækjum
læri og skilji hvernig stafrænn leiðtogi þarf að geta búið til þverfagleg teymi sem hafa umbreytingar að leiðarljósi og sem miða að því að skerpa á kjarnafærni fyrirtækja
Fyrir hverja?
Stafræn umbreyting og leiðtogar er fyrir alla þá sem vilja kynna sér þær umbreytingar sem eru að verða vegna stafrænnar þróunar og þá sem vilja leiða breytingar sem byggja á stafrænni umbreytingu innan fyrirtækja.