Stefnumótun og skipulag
Útgáfudagur: 10/10/22
Síðast uppfært: 21/09/24
Stefnumótun og skipulag er grundvöllur árangurs fyrirtækja. Án skýrrar stefnu eiga fyrirtæki erfitt með framþróun og án skipulags sem styður stefnumótun verður stefna aldrei að veruleika. Öll fyrirtæki eiga að hafa skýra stefnu, skipulag sem styður við þá stefnu og tilgang sem gefur fólki ástæðu til að taka þátt í vegferðinni.
Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
- skilji hvað felst í hugtakinu stefnumótun, hlutverki þess, gildum, framtíðarsýn og markmiðum þegar stefnumótun er undirbúin
- átti sig á tilgangi stefnumótunar og hvers vegna hann er mikilvægur í ferlinu
- læri um mikilvægi stefnu til árangurs, skipulag og fái einnig innsýn í einfalt stefnumótunarferli til þess að fylgja þegar verið er að móta stefnu
Fyrir hverja?
Stefnumótun og skipulag er fyrir alla sem eru stjórnunarstöðum eða þurfa að hjálpa fyrirtækjum að finna tilgang og stefnu til þess að ná árangri. Mikilvægt er að allir í framkvæmdateymum fyrirtækja hafi grundvallarskilning á stefnumótun og skipulagi.
Verð: 24.000 kr.
Hagnýtar upplýsingar
TILBOÐ í takmarkaðan tíma.
Árs áskrift af um 160 MasterClass námskeiðum Akademias. Verð: 99.000 kr. Sjá nánar hér.
- Fjarnám á netinu, byrjaðu að læra núna!
- Lærðu á þínum hraða, eins oft og hvar og hvenær sem er yfir 12 mánaða tímabil.
- Hægt að læra í gegnum vefsíðu Akademias en einnig með Akademias appinu (fyrir Android og iPhone)
- Námskeiðið er í boði á sérkjörum fyrir vinnustaði - sjá nánar.
- Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 100% af verði námskeiðs.
- Vinnustaðir geta sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð inni á www.attin.is – óháð starfsmanni.
- Vinnumálastofnun veitir möguleika á styrk fyrir skjólstæðinga sína fyrir allt að 75% af verði námskeiðs.