Lýsing námskeiðs og skráning

Árangursdrifin markmiðasetning með OKR

Á námskeiðinu er  farið ofan í aðferðafræði OKR eða "Objectives & Key Results" sem hefur hjálpað fyrirtækjum á borð við Google, Amazon og Spotify að framkvæma stefnu með skýrum, sýnilegum og mælanlegum hætti. 
Aðferðafræðin nýtur sívaxandi vinsælda og hentar fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum. 

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi

  • Geti sett sér árangursdrifin markmið, skilji út á hvað OKR hugmyndafræðin gengur út á, geti notað þau verkfæri sem verða gefin til að stilla saman strengi og geti nýtt þær aðferðir sem er fjallað um til að mæla hvort áfangastað er náð eða ekki

  • Geti nýtt sér áþreifanlegar og mælanlegar niðurstöður til betri árangurs

  • Fái innsýn í verklag vinnustofu þegar unnið er með árangursdrifna markmiðasetningu

     

Fyrir hverja?

Stjórnendur og starfsmenn sem vilja læra að skerpa fókus í sínum fyrirtækjum með því að setja skýr og mælanleg markmið. 

Námskaflar og tími:

  • Inngangur - 14 mínútur.
  • Okkar eigin markmið - 15 mínútur.
  • OKR flæðir í fyrirtæki - 17 mínútur.
  • Af hverju OKR - 21 mínúta.
  • Vinnustofa - 21 mínúta.
  • Innleiðing OKR - 15 mínútur.

Heildarlengd: 103 mínútur.

Verð:
24.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

TILBOÐ í takmarkaðan tíma.
Árs áskrift af um 160 MasterClass námskeiðum Akademias. Verð: 99.000 kr. Sjá nánar hér.

  • Fjarnám á netinu, byrjaðu að læra núna!
  • Lærðu á þínum hraða, eins oft og hvar og hvenær sem er yfir 12 mánaða tímabil.
  • Hægt að læra í gegnum vefsíðu Akademias en einnig með Akademias appinu (fyrir Android og iPhone)
  • Námskeiðið er í boði á sérkjörum fyrir vinnustaði - sjá nánar.
  • Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 100% af verði námskeiðs.
  • Vinnustaðir geta sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð inni á www.attin.is – óháð starfsmanni.
  • Vinnumálastofnun veitir möguleika á styrk fyrir skjólstæðinga sína fyrir allt að 75% af verði námskeiðs.

 

Leiðbeinandi

Ólafur Örn Nielsen

Ólafur Örn Nielsen er aðstoðarforstjóri Opinna Kerfa.
Ólafur hefur starfað við stjórnun og hugbúnaðarþróun í 15 ár, síðast sem framkvæmdastjóri Kolibri og þar áður hjá Form5, WOW air, Eddu útgáfu og Morgunblaðinu.